Viðskipti innlent

Samskip semur í Asíu

Kristján Már Atlason, framkvæmdastjóri hjá frystivöru- og flutningsmiðlun Samskipa og Kenta Kitamura, frá Interocean Shipping Corporation í Japan, handsala samning fyrirtækjanna að viðstöddum fulltrúum beggja fyrirtækja.
Kristján Már Atlason, framkvæmdastjóri hjá frystivöru- og flutningsmiðlun Samskipa og Kenta Kitamura, frá Interocean Shipping Corporation í Japan, handsala samning fyrirtækjanna að viðstöddum fulltrúum beggja fyrirtækja.

Japanska umboðs- og flutningafélagið Interocean Shipping Corporation hefur tekið að sér að vera umboðsaðili Samskipa í Japan. Þar er sagður vera einhver umsvifamesti og mikilvægasti kæli- og frystivöruflutningsmarkaður í heiminum og Samskip þar með hafa styrkt stöðu sína enn frekar á þeim markaði.

Samskip segja samninginn vera enn eitt skrefið í þá átt að styrkja og efla þjónustu fyrirtækisins í Asíu. Fyrir er félagið með skrifstofur í Pusan og Seoul í Suður-Kóreu, Qingdao og Dalian í Kína, sem og Ho Chi Minh borg í Víetnam.

Interocean Shipping Corporation var stofnað árið 1948 af Kitamura fjölskyldunni og fagnar því 60 ára starfsafmæli á næsta ári. Í tilkynningu Samskipa kemur fram að allt frá stofnun hafi fyrirtækið sinnt fiskflutningum og þjónustu við sjávarútveginn, þó reksturinn hafi síðar þróast inn á fleiri svið.

Haft er eftir Kenta Kitamura, forstjóra Interocean Shipping Corp. að fyrirtækinu sé mikið ánægjuefni að verða hluti af flutninganeti Samskipa.

Kristján Már Atlason, sem nýverið tók við starfi framkvæmdastjóra hjá frystivöru- og flutningsmiðlun Samskipa með aðsetur í Rotterdam, segir samstarfið við Interocean mikilvæga viðbót við sölustarfsemi fyrirtækisins í Asíu og að hagsmunir félaganna fari vel saman því bæði vilji efla þekkingu sína í greininni og auka markaðshlutdeild sína á heimsvísu.

„Eftir kaupin á frystigeymsluhluta hollenska fyrirtækisins Kloosterboer árið 2005 geta Samskip boðið upp á geymslurými í tveimur frystivörugeymslum í Hollandi, í Rotterdam og IJmuiden, ásamt geymslurými í frystigeymslum félagsins í Reykjavík, Kollafirði í Færeyjum, Álasundi í Noregi og Bayside í Kanada,“ segir í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×