Viðskipti innlent

Leikur að læra... líka í MBA-námi

Siggeir Vilhjálmsson, Þórdís Björk Sigurbjörnsdóttir og Atli Björn Bragason, nemendur í MBA-námi við Háskóla Íslands, spá í næsta leik.
Siggeir Vilhjálmsson, Þórdís Björk Sigurbjörnsdóttir og Atli Björn Bragason, nemendur í MBA-námi við Háskóla Íslands, spá í næsta leik. MYND/Heiða

Nemendur í rekstrarstjórnun MBA-náms í Háskóla Íslands hafa á þessari önn sökkt sér ofan í tölvuleiki af sömu ákefð og leikjaglaðir unglingar. Skemmtun er þó ekki aðalhugmyndin að baki þeirra leikjum. Hún fylgir frekar með í kaupunum, í einhverjum tilfellum að minnsta kosti. Tilefnið er samkeppni hópa á milli í rekstrarstjórnun í MBA-námi í Háskóla Íslands.

„Það skemmtilegasta við að nota leiki við kennslu er að það virkar svo hvetjandi á nemendur,“ segir Ingjaldur Hannibalsson, prófessor í rekstrarstjórnun við Háskóla Íslands. „Þar að auki eykur það samstillingu milli hópmeðlima að vinna að sameiginlegu markmiði.“

Leikir eru títt notaðir í bandarískum háskólum við kennslu í rekstrarstjórnun, að sögn Ingjalds. Hönnuður leiksins sem notaður er í Háskóla Íslands byrjaði að þróa hugmyndina þegar hann var kennari við Stanford-háskóla. Eftir að hafa séð hversu vel hún reyndist stofnaði hann fyrirtæki sem hann rekur nú undir nafninu Little­field Technologies og tileinkað er leikjum til kennslu.

Þúsundir nemenda víðs vegar um heim hafa nýtt sér kosti leikjanna. Á heimasíðu fyrirtækisins er verksmiðjuhermir sem nemendurnir nýta. Þeir keppa í hópum um hver nær bestum árangri við stýringu framleiðslumagns og birgðastýringu miðað við breytilega eftirspurn. Allt er þetta spurning um að hámarka hagnað með sem minnstum tilkostnaði.

„Þetta er mun meira hvetjandi aðferð en að reikna dæmi upp úr kennslubók. Þar að auki er engin ein leið rétt í rekstrarstjórnun. Það hversu vel nemendur ná að stýra ferlinu í leiknum sýnir þeim svart á hvítu hversu góðir rekstrarstjórnendur þeir eru,“ segir Ingjaldur.

Nemendur sem blaðamaður Markaðurins hitti voru Ingjaldi sammála um ágæti leiksins. Sögðu þeir aðferðirnar sambærilegar við þær sem notaðar eru í alvöru rekstri. Verkefnið snerist um að nýta fjármagn með þeim hætti að úr því næðist sem mest arðsemi. Þeir viðurkenndu að grimm samkeppni hefði ríkt hópa á milli á meðan á leikjunum stóð og mikil leynd ríkt um leikaðferðir. Þannig er það líka í raunheimum eins og nemendurnir þekkja enda búa langflestir MBA-nema yfir töluverðri starfsreynslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×