Tónlist

Krafturinn á Klais í kvöld

Þeir sem til þekkja segja að Klais-orgelið í Hallgrímskirkju sé Rolls í heimi kirkjuorgela. Svo mikið er víst að Kirkjulistahátíð lofar flugeldasýningu í kirkjuskipinu á Skólavörðuholti í kvöld þegar breski orgelleikarinn Christopher Herrick flytur glæsileg verk á gripinn. Á verkaskránni eru verk eftir Brahms, Farrington, Vierne, Buxtehude, Mozart og fleiri undir yfirskriftinni Orgelflugeldar. Þetta er í fimmta sinn sem Christopher Herrick kemur fram hér í Hallgrímskirkju og er það enn ein staðfestingin á því að alþjóðlegir organistar sækjast eftir að leika á Klais-orgelið í kirkjunni. Herrick hefur spilað inn á tíu diska í útgáfuröðinni „Organ Fireworks" þar sem hann leikur á þekkt orgel víðs vegar um heiminn og hafa þeir hlotið frábærar móttökur hjá gagnrýnendum, Einn þeirra, sá sjöundi, var tekinn upp í Hallgrímskirkju.

Christopher Herrick hóf tónlistarferil sinn sem kórdrengur í St. Paul's dómkirkjunni í Lundúnum. Að loknu námi var honum boðin staða sem aðstoðarorganisti við sömu kirkju. Eftir að hafa starfað þar í sjö ár var hann í tíu ár aðstoðarorganisti við Westminst­er Abbey. Á þeim tíma hélt hann yfir tvö hundruð tónleika auk skyldustarfa sinna við kirkjuna. Frá 1984 hefur Christopher Herrick starfað sem konsert­orgelleikari í tónleikasölum og kirkjum víðs vegar um Evrópu, Norður-Ameríku og í Eyjaálfu. Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 20.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×