Viðskipti innlent

Al Gore ávarpaði gesti Landsbankans

Al Gore hugsar grænt Fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna ávarpaði orku- og umhverfisráðstefnu Merrion Capital, dótturfélags Landsbankans, á dögunum.
Al Gore hugsar grænt Fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna ávarpaði orku- og umhverfisráðstefnu Merrion Capital, dótturfélags Landsbankans, á dögunum. Mynd/Johny Bambury

Yfir fjögur hundruð manns hlustuðu á framsöguræðu Al Gore á orku- og umhverfisráðstefnu Merrion Capital, dótturfélags Landsbankans, í Dublin á Írlandi hinn 1. desember. Ávarp hans bar nafnið „Græn hugsun: Efnahagsstefna fyrir 21. öldina.“

Þegar Al Gore var kynntur til leiks sagði John Conroy, forstjóri Merrion Capital, að Dublin væri heiður að heimsókn Gore, „sem væri áhrifamesti maður um mikil­vægasta málefni sem mannkynið stæði frammi fyrir í dag – loftslagsbreytingar“.

Gore sagði áheyrendum, meðal annarra írskum og alþjóðlegum fjárfestum og forstjórum stórra fyrirtækja, að það væri sér mikil hvatning hve ofarlega umhverfis­mál væru á baugi í alþjóðlegum markaðsviðskiptum. Hann fagnaði einnig möguleikum á að versla með endurnýjanlega orkukvóta. Hann óskaði Írum til hamingju með góðan árangur í efnahagsmálum á undanförnum tíu árum. Þá sagði hann að „aukinni hagsæld [fylgdi] aukin siðferðisleg og pólitísk ábyrgð um að taka forystu í glímunni við loftslagsbreytingar.“ Þá sagði hann Írland geta gegnt lykilhlutverki meðal iðnríkja heims við að vekja athygli á umhverfisverndarmálum, í ljósi árangurs síns í viðskiptum og pólitískrar stöðu landsins.

Í fréttatilkynningu frá Landsbankanum segir að það sé skoðun bankans að alþjóðlegum fyrir­tækjum beri skylda til að taka markvissa afstöðu til mikilvægra félagslegra og siðferðislegra mála og umhverfismála. Þar á meðal sé glíman við loftslagsbreytingar. Bankinn taki þátt í mörgum verkefnum til að framfylgja þeirri stefnu.

Landsbankinn hefur lýst yfir stuðningi við leiðbeiningar OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki samkvæmt tilkynningunni. Þá hafi bankinn verið meðal þeirra sem fyrst skrifuðu undir alþjóðlega yfirlýsingu fjármálastofnana um umhverfismál og sjálfbæra þróun. Bankaráð hafi lagt aukna áherslu á að fjárfesta í fyrirtækjum og verkefnum sem hvetja til sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda. Bankinn hyggist leggja enn meira af mörkum til að stuðla að þróun á sjálfbærri nýtingu orku og auðlinda með því að nýta íslenska sérþekkingu á þessu sviði. Ísland sé í fremstu röð þegar kemur að notkun endurnýjanlegrar orku.

Á komandi árum verður umhverfisvernd eitt af mikilvægum verkefnum bankans, samkvæmt tilkynningunni. Landsbankinn hafi mótað sína eigin umhverfis­stefnu. Með viðskiptastefnu sinni vilji bankinn styðja við nýja tækni og nýjar lausnir á sviði endur­nýtan­legrar orku. - hhs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×