Viðskipti innlent

Þurfum líka evrur

Ingimar Karl Helgason skrifar
Sigurjón Árnason bankastjóri landsbankans Bjóða betri kjör fremur en að auglýsa.
Sigurjón Árnason bankastjóri landsbankans Bjóða betri kjör fremur en að auglýsa.

„Við þurfum líka evrur, ekki bara pund,“ segir Sigurjón Árnason, bankastjóri Landsbankans. Bankinn stefnir að því, á fyrri hluta næsta árs, að bjóða megin­landsbúum svipaða innlánsreikninga og hafa gengið vel í Bretlandi.

Tíu prósent árlegrar viðbótar í innlánum á Bretlandi runnu inn á reikninga í Icesave. „Engin íslensk vara hefur nokkurn tímann orðið jafn útbreidd meðal almennings á jafn skömmum tíma,“ segir Sigurjón, en breskir sparifjáreigendur hafa lagt hátt í fimm milljarða punda inn á þessa reikninga frá því í fyrrahaust. Hlutfall innlána af útlánum bankans hefur stóraukist í kjölfarið.

„Þetta eru í raun bara óbundnar sparisjóðsbækur. Við gefum ekki út kort eða neitt,“ segir Sigur­jón.

Hann útilokar ekki að bankinn reyni síðar að setja reikningana á markað Vestanhafs. „Það er aldrei að vita,“ segir Sigurjón, en bendir á að erfiðara sé að komast inn á markað þar en í Evrópu. „EES-samingurinn gerir þetta allt miklu einfaldara.“

Bankinn hlaut nýlega viðurkenningu samtakanna Financial Service Forum þar í Bretlandi, fyrir vel heppnaða markaðssetningu á innlánareikningum Ice­save.

„Við höfum ekki efni á því að vera að eyða svo miklu í auglýsingar í Bretlandi, Þær eru mjög dýrar. Svo við höfum frekar farið þá leið að bjóða fólki betri kjör en auglýsa minna,“ segir Sigurjón. Hann segir að breskir fjölmiðlar fylgist vel með kjörum á bankareikningum. „Þeir birta samanburð og fólk treystir honum. Við höfum notið þess.“

Sigurjón segir að Landsbankinn hafi riðið á vaðið með þessa einföldu innlánsreikninga sem fólk kemst á í gegnum netið. Síðan hafi keppinautar fylgt í kjölfarið. „En eftirspurning hefur verið ævintýraleg, sérstaklega á þeim tíma sem þetta byrjaði.“

Bankinn lofar fólki tiltekinni lágmarksávöxtun fram til ársins 2011. „Við settum í þetta ákveðið gólf svo fólk skynjaði að þetta væri ekki bara til skamms tíma,“ segir Sigurjón. En næstu fjögur árin lofar bankinn því að ávöxtun á innlánsreikningum verði ekki minni en 0,25 prósentustig umfram vexti Englandsbanka. „Núna er ávöxtunin 0,55 punktum fyrir ofan.“

„Þetta er bara herra Smith, venjulegt fólk,“ segir Sigurjón, þegar hann er spurður um hverjir séu viðskiptavinir bankans.

Sigurjón vill lítið segja um ógnanir. „En við höfum staðist ákveðna eldskírn.“ Þegar bankinn hafi byrjað með Icesave hafi umræða um íslensku bankana í Bretlandi ekki verið með öllu jákvæð. „Síðan var þetta Northern Rock-mál. Við vissum ekki hvernig þetta færi með okkur. Við fórum í gegnum þessa panikk­kreppu. Þetta var svona stresstest á vörunni, en við komumst í gegnum það,“ segir Sigurjón Árnason.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×