Boða mestu herferð gegn andófsmönnum sem farin hefur verið 4. febrúar 2007 20:17 Úr myndasafni. MYND/AP
Herferð írakskra og bandarískra hersveita gegn andófsmönnum í Bagdad, sem staðið hafa fyrir fjömörgum blóðugum árásum undanfarna mánuði, hefst innan skamms og verður stærrri en nokkur aðgerð sem lagt hefur verið í frá því að ráðist var inn í Írak fyrir nærri fjórum árum. Frá þessu greindu þrír yfirmenn í bandaríska hernum í dag á blaðamannafundi en þeir hafa verið írakska hernum og lögreglu til ráðgjafar. Sérstök aðgerðamiðstöð vegna herferðarinnar verður ræst á morgun og má reikna með að aðgerðin hefjist í framhaldinu. Samkvæmt áætlun yfirvalda verður hverjum steini velt við í leitinni að hermdarverkamönnum eða vopnum í höfuðborginni og látunum linnir ekki fyrr en borgin hefur öll verið könnuð. Sumir sérfræðingar óttast hins vegar að uppreisnarmenn komist út úr borginni í felur og bíði þar til aðgerðinni lýkur eða láti til skrarar skríða annars staðar í Írak. Ljóst er að hermannanna bíður mikið verk enda hefur hver mannskæð árásin verið gerð á fætur annarri í borginni, síðast í gær þar sem 135 létust og hundruðu særðust þegar flutningabíll með einu tonni af sprengiefni var sprengdur í loft upp í hverfi sjía. George Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti á dögunum að hermönnum í Írak yrði fjölgað um ríflega 20 þúsund til að takast á við ástandið þar en stærstur hluti þeirra á að starfa í Bagdad og reyna að koma þar á lögum og reglu.
Írak Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira