Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu 8. febrúar 2007 14:25
Evrópski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 3,5 prósentum. Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðlabankans, segir bankann þrátt fyrir þetta fylgjast grannt með verðbólguþróun á evrusvæðinu. Greinendur segja bankastjórann hafa notað svipað orðalag mánuði fyrir næstu hækkun stýrivaxta og gera því ráð fyrir að vextir hækki að nýju í næsta mánuði. Evrópski seðlabankinn hækkaði stýrivexti sína um 25 punkta í desember. Verðbólga á evrusvæðinu mældist 1,9 prósent í desember í fyrra en það er óbreytt þróun frá því í október. Verðbólgan er engu að síður undir 2 prósenta verðbólgumarkmiðum seðlabankans. Helstu liðirnir sem geta aukið frekar á verðbólguna er hækkun á olíuverði, að sögn Trichets.Greinandi hjá ítalska bankanum UniCredit er samhljóða öðrum greinendum en hann segir að greina megi frekari hækkun stýrivaxta af orðfæri bankastjórans. Gerir hann ráð fyrir að vextir hækki næst á öðrum ársfjórðungi þessa árs og geti svo farið að þeir standi í 4 prósentum um mitt þetta ár.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira