Sýningin Tækni og vit opnuð í dag 8. mars 2007 10:48
Stórsýningin Tækni og vit 2007 verður formlega opnuð í Fífunni í Kópavogi síðdegis í dag. Þetta er stærsta fagsýning tækni- og þekkingariðnaðarins sem haldinn hefur verið á Íslandi á þessu sviði. Geir H. Haarde forsætisráðherra setur sýninguna við hátíðlega athöfn en hún opnar fyrir gestum klukkan 18:00. Í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar segir að rúmlega 100 sýnendur á öllum sviðum tækni- og þekkingariðnaðarins verði á sýningunni en hátt í 400 starfsmenn hafa lagt nótt við dag alla vikuna við uppsetningu sýningarsvæðisins. Í dag og á föstudag verður Tækni og vit 2007 opin fagaðilum í tækni- og þekkingariðnaði og skyldum atvinnugreinum, en á laugardag og sunnudag verður almenningur einnig boðinn velkominn. Á sýningunni verður að finna fjölda fyrirtækja úr tölvugeiranum, bæði hugbúnaðar-, vélbúnaðar- og netfyrirtæki, auk fjarskiptafyrirtækja, orkufyrirtækja iðntæknifyrirtækja, sveitarfélaga, opinberra stofnana og ráðuneyta, skóla, fjármálafyrirtækja og fjölmiðla. Þá munu sýnendur kynna nýjungar í vörum og þjónustu en einnig veita margvíslega fræðslu um ýmislegt sem tengist tækni- og þekkingariðnaði. AP sýningar standa að Tækni og vit 2007 í samstarfi við forsætisráðuneyti, fjármálaráðuneyti, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, Samtök iðnaðarins, Háskólann í Reykjavík, Orkuveitu Reykjavíkur og TM Software.Vefur Tækni og vits 2007
Tækni Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira