Dolce & Gabbana hætta að auglýsa á Spáni 13. mars 2007 16:38 Þessi auglýsing frá Armani Junior þótti óviðeigandi, á Spáni.
Tískufyrirtækið Dolce & Gabbana ætlar að hætta öllum auglýsingum í spænskum fjölmiðlum, til þess að verja frelsi sitt til sköpunar, eins og það er orðað. Spænsk yfirvöld höfðu farið fram á að nýjasta auglýsingaherferð fyrirtækisins verði bönnuð, þar sem hún niðurlægi konur. Í yfirlýsingu frá Dolce & Gabbana segir að í því andrúmslofti ritskoðunar sem sé á Spáni, sjái menn neikvæð skilaboð, jafnvel þar sem þau sé ekki að finna. Ein af auglýsingunum, sem Dolce & Gabbana hafa raunar afturkallað á Ítalíu, sýnir karlmann sem er ber að ofan, halda niðri konu með taki um úlnliði hennar. Annað fólk horfir áhugalausst á þetta. Mannréttindasamtökin Amnesty International gerðu athugasemd við þessa auglýsingu, þegar hún birtist í ítölskum fjölmiðlum. Á annarri auglýsingu er karlmaður sem liggur nakinn í fjöru. Kona heldur honum niðri með því að stíga öðrum fæti á brjóst hans, á háhæluðum skóm. Ekki var gerð athugasemd við þá auglýsingu. Yfirvöld á Spáni hafa einnig beint sjónum sínum að auglýsingum frá Georgio Armani, á barnalínu tískuhússins, Armani Junior. Í einni auglýsingunni eru tvær telpur, sex eða sjö ára sem halda hvor utan um aðra og brosa við myndavélinni. Í kvörtun yfirvalda segir að telpurnar séu málaðar og varalitaðar.
Erlent Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Fleiri fréttir Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Sjá meira