Varnarmálaráðuneytið lengir dvöl hermanna á vígstöðvum 11. apríl 2007 21:59 MYND/AP
Bandarískir hermenn í Írak og Afganistan þurfa framvegis að vera 15 mánuði í stað eins árs á vígstöðvunum samkvæmt nýjum reglum sem Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kynnti í dag. Markmiðið með þessum breytingum er að tryggja að nægur mannskapur verði í löndunum til að takast á við þau erfiðu verkefni sem Bandaríkjaher fæst við þar, en í báðum löndum stendur yfir hatrömm barátta við uppreisnarmenn. Nýju reglurnar gera jafnfram ráð fyrir að hermenn fái að minnsta kosti eins árs frí frá bardögum þegar þeir snúa heim. Gates viðurkenndi í dag að mikið álag væri á bandaríska hernum vegna aðgerðanna í Írak og Afganistan en stjórnmálaskýrendur segja að með nýju reglunum sé verið að forðast það að herinn lendi í vandræðum á næstu árum. Alls eru um 145 þúsund bandarískir hermenn í Írak og ná reglurnar til þeirra og þess hóps sem senda á til Íraks á næstunni. Auk þessa leitar Bandaríkjastjórn að stríðsstjóra til þess að stýra aðgerðum og uppbyggingu í bæði Írak og Afganistan. Eftir því sem Washington Post greinir frá hafa þrír hershöfðingjar innnar Bandaríkjahers neitað að taka að sér starfið.
Írak Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Fleiri fréttir ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Sjá meira