Tesco skilar metári 16. apríl 2007 06:30
Áætlaður hagnaður Tesco fyrir síðasta ár nemur rúmum 2,5 milljörðum punda, jafnvirði 325 milljörðum íslenskra króna. Gangi þetta eftir jafngildir það að félagið hafi hagnast um 624 þúsund krónur á hverri einustu mínútu í fyrra. Hagnaðurinn hefur aldrei verið meiri gangi áætlanir eftir. Þessi stærsta verslanakeðja Bretlands skilar afkomutölum sínum á morgun og er gert ráð fyrir að hagnaðurinn hafi aukist um 12 prósent á milli ára. Tesco hefur sætt harðri gagnrýni fyrir einokunartilburði á breska matvörumarkaðnum en fyrirtækið hefur rétt rúmlega 31 prósents markaðshlutdeild. Er fyrirtækinu gefið að sök að bera ábyrgð á því að fjöldi verslana víða um land hafi þurft að hætta starfsemi vegna ofríkis Tesco. Forsvarsmenn Tesco standa hins vegar fast á því að mikil samkeppni ríki á breska matvörumarkaðnum, að sögn breska ríkisútvarpsins, sem bætir við að netverslun í Bretlandi sé í mikilli sókn.Tesco rekur rúmlega 1.400 verslanir í Bretlandi og hefur hafið sókn inn á nýja markaði, svo sem í Bandaríkjunum og Kína.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira