Royal Bank of Scotland vill ABN Amro 25. apríl 2007 08:42 Eitt útibúa hollenska bankans ABN Amro. Mynd/AFP
Royal Bank of Scotland er í forsvari fyrir þrjá evrópskra banka sem hafa formlega lýst yfir áhuga á því að leggja fram kauptilboð í ABN Amro, stærsta banka Hollands. Tilboðið er sagt hljóða upp á 72 milljarða evrur, rúmlega 6.300 milljarða íslenskra króna. Verði gengið að tilboðinu spillir það kaupum Barclays á hollenska bankanum, sem sögð eru stærstu fyrirtækjakaup í evrópski bankasögu. Barclays og ABN Amro undirrituðu viljayfirlýsingu í vikubyrjun sem fól í sér að Barclays kaupir hollenska bankann fyrir 67 milljarða punda, jafnvirði tæpra 5.900 milljarða íslenskra króna. Fólst í kaupunum að Barclays myndi flytja höfuðstöðvar sínar til Amsterdam í Hollandi og að ABN Amro myndi selja bankastarfsemi sína í Bandaríkjunum, en síðasttalda atriðið er sagt mikilvægt skref til að ljúka kaupunum. Bankarnir sem Royal Bank of Scotland leiðir eru spænski bankinn Santander og belgíski bankinn Fortis. Breska ríkisútvarpið (BBC) segir að verði lagt fram formleg yfirtökutilboð í ABN Amro verði 70 prósent hlutanna greiddir með reiðufé en afgangurinn með hlutum í Royal Bank of Scotland. BBC hefur eftir talsmönnum skoska bankans að formlegt tilboð í ABN Amro verði einungis lagt fram verði ekkert úr sölu ABN Amro á bandarísku bankastarfseminni. Gangi salan hins vegar í gegn muni bankinn fara í óvinveitta yfirtöku á ABN Amro en það þýðir að bankahópurinn undir forystu Royal Bank of Scotland gerir hluthöfum tilboð í hlutaféð í stað þess að setjast við samningaborðið með stjórn bankans.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir Viðskipti innlent Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni Atvinnulíf Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Viðskipti innlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira