Innlent

Ágætar líkur á áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarfi

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir ágætar líkur á að ríkisstjórnarflokknum takist að endurnýja samstarf sitt. Formenn stjórnarflokkanna vonast til að málin skýrist innan fárra daga.

Ríkisstjórnin kom samn til síns fyrst fundar í Stjórnarráðinu við Lækjartorg í morgun eftir þingkosningar. Aðeins eitt mál var á dagskrá, staða mála að loknum alþingiskosningum, og stóð fundurinn í aðeins 20 mínútur.

Aðspurður hvernig viðræðum yrði hagað næstu daga sagði Jón Sigurðsson að rætt yrði saman líkt og síðustu daga. Aðstoðarmenn og varaformenn flokkanna kæmu að viðræðunum. Aðspurður sagðist hann telja að allir vildu að mál kæmust á hreint sem fyrst en mönnum lægi þó ekkert óskaplega á. Ríkisstjórnin hefði haldið velli. Jón átti von á því að niðurstaða í viðræðunum lægi fyrir á næstu dögum.

Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist aðspurður hvort menn væru nær eða fjær því að endurnýja samstarfið að menn væru á sama stað. Ekkert nýtt væri komið upp. Aðspurður sagði hann ágætar líkur á því að ríkisstjórnarsamstarfið héldi áfram en að það væri ekki öruggt. Það réðist á næstu dögum hvort svo yrði.

Geir var spurður hvað ráðherrar flokksins hefðu rætt eftir fundinn með framsóknarmönnum og þá sagði hann að þeir hefðu rætt stöðuna.

Aðspurður hvort útstrikanir Björns Bjarnasonar og Árna Johnsen hefðu verið ræddar sagði Geir að svo hefði ekki verið. Þær væru í farvegi hjá kjörstjórnum og landskjörstjórn. Hann sagðist aðspurður hissa á útsrikununum en þetta væri í samræmi við reglur sem giltu um kosningar á Íslandi. Geir vildi ekkert segja til um það hvort þetta breytti stöðu Björns Bjarnasonar gagnvart ríkisstjórnarsetu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×