Erlent

Ráðist á þýska hermenn í Afganistan

Óli Tynes skrifar
Frá Afganistan.
Frá Afganistan.
Þrír þýskir hermenn og sex óbreyttir borgarar féllu í sprengjuárás í Afganistan í dag. Hermennirnir höfðu stigið út úr jeppa sínum og voru að fara inn í verslun þegar sprengjan sprakk. Talibanar hafa lýst tilræðinu á hendur sér. Talibanar eru nú óðum að skríða úr vetrarhíði sínu og segjast hafa þjálfað hundruð manna til sjálfsmorðssprengjuárása, í vetur.

Það er hefð fyrir því í Afganistan að lítið sé um að vera á vígvöllunum á veturna , enda eru þeir harðir og snjóþungir. Með hækkandi sól kemur hinsvegar engin lóa til þess að kveða burt snjóinn, heldur gallharðir vígamenn í leit að óvinum til þess að drepa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×