Carlsberg yfir væntingum 8. ágúst 2007 10:04 Kassi með bjór frá hinum danska Carlsberg.
Hagnaður danska bjórframleiðandans Carlsberg nam rétt rúmum einum milljarði danskra króna, jafnvirði 11,8 milljörðum íslenskra króna, á öðrum fjórðungi ársins. Þrátt fyrir samdrátt upp á 18 prósent á milli ára er afkoman yfir væntingum markaðsaðila. Að sögn bandaríska viðskiptatímaritsins Fortune var gert ráð fyrir því að hagnaðurinn myndi nema 888 milljónum danskra króna, 10,5 milljörðum íslenskra. Hagnaður fyrirtækisins á sama tíma í fyrra nam hins vegar 1,27 milljörðum danskra króna, jafnvirði rúmra 15 milljarða íslenskra króna. Ástæðan fyrir betri afkomu var sala á hlut í bjórfyrirtækinu Hite Brewery í S-Kóreu. Gjörningurinn skilaði Carlsberg hálfum milljarði danskra króna í vasann. Tekjur Carlsberg námu rúmum 12,6 milljörðum danskra króna samanborið við 11,44 milljarða á sama tíma í fyrra. Aukin sala á miðinum gyllta undir merkjum Carlsberg og Tuborg, sem fyrirtækið framleiðir sömuleiðis, í Evrópu og Kína er helsta ástæðan fyrir betri afkomu nú en í fyrra. Forsvarsmenn Carlsberg eru hæstánægðir með árangurinn og gera ráð fyrir að minnsta kosti 2,2 milljarða danskra króna hagnaði á árinu öllu í uppfærðri spá sinni.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira