Foreldrar Madeleine að skilja -portúgalskir fjölmiðlar Óli Tynes skrifar 5. september 2007 12:51 Gerry og Kate McCann.
Foreldrar Madeleine McCann eru að því komin að skilja, að sögn fjölmiðla í Portúgal. Hjónin hafa haldið til í Portúgal síðan dóttir þeirra hvarf fyrir tæpum fjórum mánuðum. Þau segjast enn sannfærð um að litla telpan finnist á lífi. Portúgalskir fjölmiðlar virðast orðnir þreyttir á þeim og hafa birt um þau margar særandi fréttir. Gerry og Kate McCann eiga nú í málaferlum við blað sem hélt því blákalt fram að þau hefðu sjálf valdið dauða dóttur sinnar. Blaðið sagði að sprautunál hefði fundist í barnaherbergi hjónanna. Í henni hefði verið svefnmeðal. Blaðið gerði því skóna að hjónin hefðu svæft börn sín til þess að geta sjálf farið út að skemmta sér. Þau hefðu gefið Madeilene of stóran skammt, sem dró hana til dauða. Þau hafi þá falið líkið til þess að firra sig sök. Gerry og Kate eru bæði læknar. Og nýjustu fréttirnar í portúgölskum fjölmiðlum eru þær að McCann hjónin séu að skilja. Vinir þeirra vísa þessu á bug í viðtali við Sky sjónvarpsstöðina. Segja að hinir skelfilegu erfiðleikar undanfarna mánuði hafi þvert á móti fært þau nær hvort öðru og styrkt samband þeirra.
Erlent Madeleine McCann Mest lesið Eldar loga í LA og neyðarástandi lýst yfir Erlent Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn Innlent Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura Innlent Fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir bruna á Sævarhöfða Innlent Belgar varaðir við því að borða jólatrén Erlent Gerði ráð fyrir að verða formaður þingflokksins Innlent Útilokar ekki að beita hervaldi til að ná Grænlandi Erlent Dregið verulega úr ritskoðun á Facebook og Instagram Erlent Tundurduflið dregið út á Eyjafjörð og eytt í birtingu Innlent Ætlar að hitta kónginn í dag Erlent Fleiri fréttir Ætlar að hitta kónginn í dag Belgar varaðir við því að borða jólatrén Dregið verulega úr ritskoðun á Facebook og Instagram Eldar loga í LA og neyðarástandi lýst yfir Útilokar ekki að beita hervaldi til að ná Grænlandi Ummæli um vanþakklæti Afríkubúa valda reiði Danir ekki í rónni með Grænlandsheimsókn Trumps yngri Le Pen látinn Símar framhaldskólanema læstir inni í skáp Trump-liðar vilja stöðva birtingu skýrslu Smiths Aldrei færri fangar í Guantánamo-fangelsinu Enn segjast menn vongóðir um vopnahlé á Gasa Tugir látnir eftir stóran skjálfta í Tíbet Trump yngri á leið til Grænlands Trudeau segir af sér Byrjuðu strax að endurskrifa sögu árásarinnar Minkarækt hafin að nýju eftir að milljónum var lógað Hafa tekið nokkur þorp í Kúrsk Sjötta fórnarlamb árásarinnar í Magdeburg látið Afsögn Trudeau sögð yfirvofandi Biðtíminn í umferðinni hvergi lengri en í Lundúnum Sagður hafa þegið töskur fullar fjár frá Gaddafi Kuldaboli bítur Bandaríkjamenn Musk reynir að hafa áhrif víða: „Ekki fóðra tröllið“ Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir The Vivienne er látin Trump ósáttur að flaggað verði í hálfa við innsetninguna Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu Austurríkiskanslari segir af sér eftir árangurslausar viðræður Í fangelsi fyrir að sofa hjá ári yngri stúlku Sjá meira