McCann-hjónin komin heim Guðjón Helgason skrifar 9. september 2007 12:11
Hjónin Kate og Gerry McCann, sem bæði eru með réttarstöðu grunaðra vegna hvarfs dóttur þeirra Madeleine í Portúgal í vor, eru komin heim til Englands. Heim fóru þau með leyfi portúgalskra yfirvalda. Rúmir fjórir mánuðir eru frá því Madeleine McCann hvarf af hótelherbergi fjölskyldunnar á Praia da Luz í Portúgal. Þegar það gerðist voru hjónin fjarri - á nálægum veitingastað að snæða kvöldverð. Fyrir helgi fengu hjónin réttarstöðu grunaðra í málinu - en þrotlaus leit að Madeleine hefur engan árangur borið. Kate og Gerry fóru frá Portúgal snemma í morgun og lentu á Englandi á tólfta tímanum. Ferðin heim er farin með fullu samþykki portúgalskra yfirvalda sem hefðu auðveldlega getað hindrað för þeirra. Talsmaður hjónanna sagði þau ekki á flótta heldur yrðu þau að snúa heim með tveggja ára tvíbura sína. Á flugvellinum sagði Gerry að þau hjónin yrðu nú að jafna sig eftir óhugnalega atburði síðustu daga. Þau væru alsaklaus og ætluðu að halda áfram leitinni að dóttur sinni. Yfirvöld í Portúgal hafa ekki kært McCann.hjónin. Lögfræðingur þeirra segir líkast til langt þangað til ljóst verði hvað Portúgalar ætli að gera í málinu - opinbera kerfið þar í landi sé málum hlaðið og málarekstur gangi því hægt.
Erlent Fréttir Madeleine McCann Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira