Athyglina aftur á leitina að Madeleine 18. september 2007 15:18
Fjölskylda Madeleine McCann kallaði í dag eftir því að endi yrði bundinn á stjórnlausar vangaveltur um málið og að athygli yrði aftur beint að leit stúlkunnar. Clarence Mitchell talsmaður fjölskyldunnar sagði að vangaveltur um hvort Kate og Gerry McCann hefðu harmað dóttur sína væru eins „fáránlegar og þær væru fjarstæðukenndar." Hann sagði saklausar útskýringar á öllu því sem beindist gegn foreldrunum. Kate og Gerry tryðu því staðfastlega að Madeleine væri á lífi. Þau myndu halda áfram að vinna með portúgölsku lögreglunni, en þarlend lög leyfðu ekki að þau tjáðu sig nánar um málið. Mitchell hefur hætt störfum hjá hinu opinbera og gerst talsmaður fjölskyldunnar, en áður vann hann hjá BBC. Hann var sendur á vegum utanríkisþjónustunnar til Portúgal til að tala við McCann hjónin vikurnar eftir hvarf stúlkunnar. Hann segist hafa eytt allt að 14 klukkutímum á dag með fjölskyldunni. Aldrei hafi hann orðið var við neitt sem gæfi honum ástæðu til að gruna þau um aðild að hvarfi hennar. Kate og Gerry hafa bæði réttarstöðu grunaðs í rannsókn lögreglunnar á hvarfi Madeleine. Þau neita að eiga nokkurn þátt í hvarfi hennar og hafa staðið fyrir herferð í nokkrum löndum fyrir leit að dóttur þeirra.
Madeleine McCann Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira