Charles var eina ást Díönu 21. október 2007 22:15 Díana prinsessa.
Charles var stóra og eina ástin í lífi Díönu prinsessu, að sögn náinnar vinkonu hennar. Hún elskaði hann til síðasta dags og hefði aldrei dottið í hug að giftast Dodi Al-Fayed. Lana Marks veitti Daily Mail einkaviðtal til þess að koma þessu á framfæri. Hún sagðist veita viðtalið til þess að leiðrétta allskonar bull sem sagt hefði verið um líf og dauða prinsessunnar. Ekki síst væri það Mohammed Al-Fayed, faðir Dodis sem hefði bullað. Al-Fayed hefur meðal annars sagt að Díana hafi verið ófrísk eftir Dodi þegar hún lést. Hún hafi svarað bónorði hans játandi. Breska leyniþjónustan hafi þá myrt þau að fyrirmælum konungsfjölskyldunnar. Fjölskyldan hefði ekki getað hugsað sér að móðir verðandi konungs Bretlands giftist múslima. Þetta segir Lana Marks að séu tómir hugarórar. Díana hafi aldrei litið á Dodi sem neitt annað en sumarást sem ekkert væri á bakvið. Hún segir að hún og vinkonur hennar hafi flissað þegar Mohammed Al-Fayed hafi sagt að Dodi og Díana hafi verið búin að velja sér trúlofunarhring. Marks segir að gjöfum hafi verið ausið yfir Díönu á hverjum degi og þótt Dodi hafi ætlað að gefa henni hring þá segði það nákvæmlega ekkert. Aðrar vinkonur Díönu sem leitað hefur verið til vegna nýjustu rannsóknarinnar á láti hennar taka í sama streng. Og Lana Marks segir að Díana hafi alltaf elskað Charles. Samband hans við Camillu Parker-Bowles hafi hinsvegar gert þeim ókleift að búa saman.
Erlent Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira