Bandaríska utanríkisþjónustan gerir uppreisn vegna Íraks Óli Tynes skrifar 1. nóvember 2007 15:00 Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Starfsmenn bandarísku untaríkisráðuneytisins eru ævareiðir yfir því að ákveðið hefur verið að skylda þá til þess að þjóna í Írak. Að öðrum kosti verði þeir reknir. Þetta var ákveðið vegna þess að hvergi nærri nógu margir diplomatar hafa boðist til þess að fara til Íraks. Þrátt fyrir stórfelldar bónusgreiðslur og fríðindi. Bandaríkjastjórn er nú að byggja stærsta sendiráð í heimi á bökkum árinnar Tígris í Bagdad. Þar eiga að vera 250 diplomatapóstar en það vantar enn 50 sjálfboðaliða til þess að fylla þær stöður. Mörghundruð reiðir diplomatar mættu á fund um þetta mál sem haldinn var í Washington í gærkvöldi. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra, var ekki viðstödd en hinsvegar voru þar nokkrir nánustu samstarfsmenn hennar sem sátu fyrir svörum Í stuttu máli helltu diplomatarnir úr skálum reiði sinnar yfir utanríkisráðuneytið og ráðherrann persónulega. Meðal annars var því haldið fram að aðeins 12 prósent þeirra tryðu því að Rice bæri hag þeirra fyrir brjósti. Einn fundargesta uppskar mikið lófatak þegar hann sagði að sprengjur féllu daglega í grennd við sendiráðið og að það væri dauðadómur að vera sendur þangað. Bandaríska blaðið Washington Post segir að þrír bandarískir sendiráðsstarfsmenn hafi fallið í Írak síðan innrásin var gerð þar árið 2003.
Erlent Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira