Tónlist

Þín eigin útvarpsstöð í vasanum

MYND/Síminn
Viðskiptavinir 3G þjónustu Símans geta nú hlustað á fleiri en 50 þúsund lög beint af tónlist.is á hraða og gæðum sem ekki hafa þekkst áður. Nú getur viðskiptavinurinn hlustað á lagalistana sína, netlistann eða nýjustu plöturnar hvar og hvenær sem er í símanum.

,,Þetta er bara eins og að vera með þína eigin útvarpsstöð í símanum" segir Engilbert Hafsteinsson hjá Tónlist.is. ,,Þarna ertu bara með 50 þúsund lög sem þú getur spilað að vild." Engilbert spáir því að þessi leið til að hlusta á tónlist muni sækja á. Í Japan, sem er mjög framarlega í farsímamálum sé þetta orðið mjög algengt. ,,98% af allri stafrænni sölu á tónlist fer í gegnum farsíma í Japan. Þetta er bara nýja leiðin til að kaupa tónlist" segir Engilbert.

Tónlist.is er fyrsti íslenski vefurinn sem hannar lausn sem er sérsniðin fyrir gagnahraða í 3G. Gagnahraðinn býður upp á að notendur geti hlustað á tónlist í fullum án þess að hlaða henni niður. Notendur geta því streymt eigin lagalistum og netstöðvum beint í símtækið.

Tónlist í símanum er hluti af 3G þjónustu Símans og er möguleiki í nær öllum 3G símtækjum. Til að nýta þjónustuna þarf að hafa 3G símtæki, 3G símkort og vera inni á 3G neti Símans. Til að geta hlustað á tonlist.is þarf símtækið að styðja XHTML markup og 3GPP streymi, skilyrði sem flestir nýir 3G símar uppfylla.

Síminn býður viðskiptavinum þriggja mánaða áskrift að Tonlist.is í símanum frítt á meðan birgðir endast eða til 1. janúar 2008.

Nánari upplýsingar um þjónustuna er að finna á vef Símans og á Tónlist.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×