Sannfærandi sigur hjá KR 16. nóvember 2007 20:46 Helgi Magnússon átti fínan leik hjá KR í kvöld Mynd/Daniel
KR-ingar unnu í kvöld öruggan sigur á ÍR 92-60 í Iceland Express deild karla í körfubolta. Sigur KR var aldrei í hættu eftir að liðið fór með 44-29 forystu til búningsherbergja í hálfleik. KR-ingar hittu ekki sérstaklega vel úr langskotum sínum í leiknum en það var fyrst og fremst harður varnarleikur meistaranna sem skóp sigurinn. KRingar voru án Darra Hilmarssonar og Fannars Ólafssonar í kvöld en það kom ekki að sök. Þeir Joshua Helm og Avi Fogel skoruðu 18 stig hvor, Helgi Már Magnússon skoraði 16 stig og Jovan Zdravevski skoraði 15 stig. Skallagrímur vann grannaslaginn Skallagrímsmenn unnu nauman sigur á grönnum sínum í Snæfelli í hörkuleik í kvöld 81-80 eftir að gestirnir höfðu verið með þægilegt forskot í hálfleik. Snæfell skoraði hinsvegar aðeins 30 stig í síðari hálfleik og það nýttu heimamenn sér. Snæfellingar unnu baráttuna um fráköstin með yfirburðum (38-26) en liðið tapaði líka 18 boltum í leiknum gegn aðeins 7 hjá heimamönnum. Milojica Zekovic skoraði 21 stig fyrir Skallagrím í kvöld og Allan Fall 19, en Justin Shouse var í sérflokki hjá Snæfelli með 31 stig og Sigurður Þorvaldsson skoraði 17 stig og hirti 8 fráköst. Hlynur Bæringsson skoraði 10 stig og hirti 17 fráköst. Keflavík á toppnum sem fyrr Keflavík er á toppnum með fullt hús stiga (14) eftir 7 leiki, Grindavík og KR hafa 12 stig (KR eftir átta leiki), Njarðvík hefur 8 stig og svo koma Snæfell, Stjarnan, Þór Akureyri, Tindastóll og Skallagrímur öll með 6 stig, Fjölnir og ÍR hafa 4 stig og á botninum eru Hamarsmenn með aðeins 2 stig.
Dominos-deild karla Mest lesið Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Fleiri fréttir „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 95-80 | Yfirburðir í fráköstum og Njarðvíkingar leiða „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Martröðin fullkomnuð fyrir Mavericks Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers KR einum sigri frá því að komast upp í Bónus-deildina Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Haiden Palmer kemur aftur til Íslands en nú sem þjálfari Garðabæjargrýla Grindvíkinga hefur stækkað og stækkað í 86 mánuði Lagði egóið til hliðar fyrir liðið „Ég er alltaf stressuð“ Dallas og Miami enn á lífi í umspili NBA „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ „Fáránlega erfið sería“ Háspenna í umspili um sæti í Bónus deildinni Uppgjörið: Haukar - Grindavík 79-64 | Haukar númeri of stórar Svona eru undanúrslitin: Ballið hefst á tvíhöfða annan í páskum Versta úrslitakeppnin í sögu Reykjanesbæjarliðanna Butler og Curry í stuði þegar Golden State komst í úrslitakeppnina Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug „Holan var of djúp“ „Vissum alveg að við værum í góðum málum“ „Við erum að byggja upp ákveðinn kúltúr“ Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 104-89 | Álftnesingar í undanúrslit í fyrsta sinn Uppgjörið: ÍR - Stjarnan 74-80 | Garðbæingar í undanúrslit Sjá meira