Körfubolti

Full­komnuðu endur­komuna og hentu Boston út

Valur Páll Eiríksson skrifar
Joel Embiid og félagar fóru áfram á kostnað Celtics. Jaylen Brown reyndi sitt en hafði ekki erindi sem erfiði.
Joel Embiid og félagar fóru áfram á kostnað Celtics. Jaylen Brown reyndi sitt en hafði ekki erindi sem erfiði. Maddie Meyer/Getty Images

Philadelphia 76ers komust í nótt áfram í undanúrslit Austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta eftir sigur á Boston Celtics í oddaleik. Celtics urðu aðeins 14. liðið í sögunni til að falla úr keppni eftir að hafa leitt seríu 3-1.

Liðin tvö höfðu skipst á sigrum í fyrstu tveimur leikjum seríunnar í Boston en Celtics unnu næstu tvo leiki í Philadelphiu og allt stefndi í að þeir myndu koma sér áfram.

Sixers unnu leik fimm í Boston og fylgdu því eftir með sigri heima fyrir í sjötta leiknum til að knýja fram oddaleik í TD Garden sem fram fór í nótt.

Sixers létu kné fylgja kviði eftir tvo góða sigra í röð og byrjuðu leikinn betur. Þeir leiddu 32-19 eftir fyrsta leikhlutann og voru skrefi á undan stærstan part.

Boston tókst að minnka muninn í eitt stig í tvígang í spennnadi fjórða leikhluta en tókst ekki að brúa bilið til fulls. Gestirnir voru sterkari á lokakaflanum og unnu 109-100 sigur til að komast áfram í undanúrslit þar sem Philadelphia mætir New York Knicks.

Boston Celtics eru aðeins fjórtánda liðið í sögunni sem fellur úr keppni í úrslitakeppninni eftir að hafa leitt hana 3-1.

Joel Embiid fór fyrir 76ers með 34 stig, tólf fráköst og sex stoðsendingar. Tyrese Maxey skoraði 30 stig, tók ellefu fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Hjá Celtics var Jaylen Brown með 33 stig en aðeins 44 prósent skotnýtingu og Derrick White með 26 stig en tæplega 35 prósent nýtingu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×