Rússnesku kafbátarnir komnir aftur Óli Tynes skrifar 26. nóvember 2007 11:02
Rússneskir kafbátar eru aftur komnir á kreik á Norður-Atlantshafi. Norska varnarmálaráðuneytið hefur staðfest við fjölmiðla að ferðum rússneskra kafbáta undan ströndum Noregs hafi fjölgað. Gera má því skóna að það sama eigi við um Ísland. Orion kafbátaleitarvélar norska sjóhersins hafa varpað hlustunarbaujum í grennd við kafbátana til þess að fá nákvæma staðsetningu þeirra.Baujurnar senda frá sér hljóðmerki sem kafbátsmenn heyra. Rússarnir vita því að Norðmenn vita hvar þeir eru.Talsmaður varnarmálaráðuneytisins segir að Rússar sendi með þessu skilaboð um að þeir séu stórveldi sem taka beri tillit til.Þessari umferð sé ekki beint gegn neinu sérstöku landi og ekki gegn Noregi. En Noregur liggi jú þar sem Noregur liggi, landfræðilega.Þegar Sovétríkin liðuðust í sundur hættu þau að mestu eftirlitsflugi og kafbátaferðum á Norður- Atlantshafi. Flugið hefur verið að hefjast á ný undanfarin misseri og nú eru kafbátarnir komnir aftur.Kafbátaeftirlit á Norður-Atlantshafi var stór þáttur, í starfsemi bandaríska varnarliðsins á Íslandi. Hér var jafnan heil flugsveit af Orion kafbátaleitarvélum.Jafnframt komu kafbátaleitarvélar frá öðrum NATO ríkjum til Íslands.
Erlent Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira