Viðskipti innlent

Félag um norska fósturvísa

Von á norskum frændsystkinum Hópur bænda hyggst stofna hlutafélag um innflutning á fósturvísum og sæði norska rauða kúakynsins.
Von á norskum frændsystkinum Hópur bænda hyggst stofna hlutafélag um innflutning á fósturvísum og sæði norska rauða kúakynsins.

„Við stefnum að því að stofna hlutafélag um innflutning á norskum fósturvísum og sæði,“ segir Jón Gíslason, formaður Nautgriparæktarfélags Íslands.

Hann segir að hópur bænda standi að stofnun félagsins en ekki sé víst hversu margir þeir verði. Til standi að félagið verði til í næsta mánuði. Hugmyndin sé að gera tilraun á um tíu búum, sem eigi að standa í fjögur til fimm ár.

Í framhaldinu verður sótt um leyfi til landbúnaðarráðuneytisins til að flytja inn fósturvísa og sæði úr norska rauða kúakyninu.

„Við gerum ráð fyrir að kostnaður við innflutninginn verði á bilinu tíu til fimmtán milljónir króna,“ segir Jón.

Hann segir að norsku kýrnar bæði mjólki betur og séu þolnari gagnvart sjúkdómum en íslenskar kýr. „Ein af hverjum þremur kúm sem eru felldar er með júgurbólgu, svo ég nefni dæmi,“ segir Jón. Hann segir að ráðherra, með blessun yfirdýralæknis eigi lokaorðið um hvort innflutningurinn verði heimilaður.

„Við förum yfir málið þegar landbúnaðarráðuneytið biður okkur um umsögn,“ segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir. Hann bendir á að um síðustu aldamót hafi verið sótt um innflutning á fósturvísum frá Noregi. Þá hafi embættið talið að áhætta vegna sjúkdóma væri ásættanleg. Hins vegar varð ekkert af innflutningi þá vegna andstöðu bænda.

Halldór bendir jafnframt á að júgurbólga sé algengur sjúkdómur í mjólkurkúm. Það eigi við hér eins og annars staðar, einnig í Noregi. - ikh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×