Tónlist

Settu met á Myspace

Axl Rose söngvari Guns N"Roses,.
Axl Rose söngvari Guns N"Roses,.

Nýjasta plata Guns N"Roses, Chinese Democracy, er orðin vinsælasta platan í sögu Myspace-síðunnar. Sveitin leyfði aðdáendum sínum að hlusta ókeypis á plötuna á síðunni á fimmtudag og voru viðbrögðin framúrskarandi. Þegar mest lét var platan spiluð 25 sinnum á sekúndu sem er vitaskuld mjög góður árangur.

Hlustanir á plötuna hafa náð yfir þrjár milljónir, sem er töluvert meira en fyrri methafinn Beyoncé Knowles náði með sinni síðustu plötu. Sautján ár eru liðin síðan síðasta plata Guns N"Roses kom út með nýju efni og hafa margir því beðið eftir Chinese Democracy með mikilli eftirvæntingu.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×