Tónlist

Elbow fékk Mercury-verðlaun

Rokksveitin Elbow með Mercury-verðlaunin sem hún fékk fyrir bestu plötu ársins á Bretlandi, The Seldom Seen Kid.nordicphotos/getty
Rokksveitin Elbow með Mercury-verðlaunin sem hún fékk fyrir bestu plötu ársins á Bretlandi, The Seldom Seen Kid.nordicphotos/getty

Rokksveitin Elbow hlaut Mercury-verðlaunin í ár fyrir bestu plötu ársins á Bretlandi, The Seldom Seen Kid. Platan er sú fjórða frá sveitinni, sem var stofnuð fyrir sautján árum.

Sjö ár eru liðin síðan Elbow fékk síðast tilnefningu til Mercury-verðlaunanna, eða fyrir sína fyrstu plötu Asleep in the Back. „Ég veit að ég á að segja eitthvað svalt og sniðugt en þetta er einfaldlega það besta sem hefur komið fyrir okkur," sagði söngvarinn Guy Garvey er hann tók á móti verðlaununum úr höndum sjónvarpsmannsins Jools Holland.

Ellefu aðrir flytjendur voru tilefndir, þar á meðal Radiohead, Burial, Adele og Robert Plant og Alison Krauss. Mercury-verðlaunin eru afhent breskum eða írskum listamönnum sem gefa út plötur sínar frá júlí 2007 til júlí 2008. Á meðal fyrri sigurvegara eru Klaxons, Arctic Monkeys, Antony and the Johnsons og Dizzee Rascal.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×