Unglingar myrtir við sundiðkun í Michigan Óli Tynes skrifar 2. ágúst 2008 11:41
Níu ungmenni voru að synda í á í Marinette sýslu í Michigan á fimmtudagskvöldið. Þau áttu sér einskis ills von þegar allt í einu maður vopnaður riffli hóf formálalaust skothríð á þau. Tveir piltar og ein stúlka voru skotin til bana og einn piltur að auki særður. Morðinginn hvarf til skógar. Mikið lögreglulið var sent til leitar í skóginum og fann í gær mann í felubúningi, vopnaðan riffli. Hann fleygði frá sér rifflinum og veitti enga mótspyrnu þegar hann var handtekinn. Hinn handtekni er 38 ára gamall og heitir Scott Johnson hann er frá bæ nærri morðstaðnum. Lögreglustjórinn í Marinette sýslu segir að þeir séu nokkuð vissir um að Johnson sé morðinginn sem leitað var. Eftir er að gera prófanir á riffli hans til að komast að því hvort hann sé morðvopnið. Lögreglustjórinn segir að engin sýnileg ástæða sé fyrir ódæðinu. Morðinginn hafi verið nokkuð frá unglingunum og ekkert yrt á þá áður en hann hóf skothríð.
Erlent Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira