Bíó og sjónvarp

Endurgera Oldboy

Will Smith mun líklega fara með aðalhlutverkið í endurgerð myndarinnar Oldboy.
Will Smith mun líklega fara með aðalhlutverkið í endurgerð myndarinnar Oldboy.

Leikstjórinn Steven Spielberg og leikarinn Will Smith ætla sér að endurgera suður-kóresku bíómyndina Oldboy sem kom út fyrir fimm árum við góðar undirtektir.

Myndin fjallar um það þegar manni sem hefur verið haldið föngnum í herbergi í fimmtán ár án útskýringa er sleppt lausum. Eftir að hafa fengið peninga, farsíma og föt í hendur heldur hann í leiðangur til að finna manneskjuna sem eyðilagði líf hans.

Fyrirtæki Spielberg, Dreamworks, reynir nú að tryggja sér réttinn til endurgerðarinnar. Smith myndi fara með aðalhlutverkið en Spielberg hefur lengi dreymt um að starfa með honum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×