Tónlist

Fögnuðu nýrri plötu

Systkinin Herdís og Böðvar Rafn Reynisson úr Dalton, ásamt Kevin af sjónvarpsstöðinni MTV.
Systkinin Herdís og Böðvar Rafn Reynisson úr Dalton, ásamt Kevin af sjónvarpsstöðinni MTV.

Hljómsveitin Atómstöðin fagnaði útgáfu nýrrar plötu sinnar með partíi á Bar 11.

„Það var fullt hús af fólki og ofsalega góð stemning,“ segir Guðmundur Ingi Þorvaldsson, söngvari Atómstöðvarinnar, um útgáfupartí hljómsveitarinnar sem fram fór á Bar 11 síðastliðinn fimmtudag í tilefni af útgáfu plötunnar Exile Republic.

„Stefnir bakari, vinur okkar, bakaði köku og við buðum upp á söl, sem er þjóðarréttur bandsins. Svo seldum við öll eintökin af plötunni sem við vorum með á okkur, svo þetta hefði ekki getað verið betra“ segir Guðmundur Ingi, ánægður með vel heppnað útgáfupartí.- ag

Skemmtu sér vel Anna Kristín og Heiðdís Halla létu sig ekki vanta í útgáfupartý Atómstöðvarinnar
í hörku stuði á Bar 11 Láki og Lilja Rut skemmtu sér vel í partýinu


Atómstöðin fagnaði Frá vinstri; Óli Rúnar Jónsson gítarleikari og upptökustjóri, Leifur Björnsson gítarleikari, Örn Ingi Ásgeirsson trommari, Guðmundur Ingi Þorvaldsson söngvari, Pétur Geir Óskarsson ljósmyndari og Hróbjartur Róbertsson bassaleikari.Fréttablaðið/Daníel





Fleiri fréttir

Sjá meira


×