Gengi hlutabréfa hækkar í Evrópu 12. september 2008 09:46 Unnið í OMX-kauphöllinni í Kaupmannahöfn í Danmörku.
Bjartsýni fjárfesta í Bandaríkjunum í gær smitaði út frá sér á alþjóðlega hlutabréfamarkaði í dag. Bjartsýnin skýrist af fréttum þess efnis að bandaríski fjárfestingabankinn Lehman Brothers ætli að selja stóran hluta starfseminnar eða bankann allan. Bankinn hefur átt við taprekstur að stríða og orðrómur um að hann rambi á barmi gjaldþrots. Lehman Brothers er fjórði umsvifamesti fjárfestingabanki Bandaríkjanna. Nikkei-hlutabréfavísitalan í Japan hækkaði um 0,93 prósent. Þá hefur FTSE-vísitalan í Bretlandi hækkað um 1,15 prósent, Dax-vísitalan í Þýskalandi hækkað um 0,84 prósent og Cac-40 vísitalan í Frakklandi hækkað um 1,33 prósent. Þetta er fyrsti hækkunin sem fjárfestar hafa séð á meginlandi Evrópu í vikunni. Talsverð hækkun er sömuleiðis á norrænum hlutabréfamörkuðum en samnorræna hlutabréfavísitalan OMX-40 hefur hækkað um 1,83 prósent í dag. Vísitalan í kauphöllinni í Helsinki í Finnlandi hefur hækkað mest, eða um 1,5 prósent. Aðrar vísitölur hafa legið á svipuðum nótum.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira