Bíó og sjónvarp

Spielberg syrgir Crichton

Rithöfundurinn heimsfrægi lést úr krabbameini, 66 ára gamall.
nordicphotos/gettyimages.
Rithöfundurinn heimsfrægi lést úr krabbameini, 66 ára gamall. nordicphotos/gettyimages.

Leikstjórinn Steven Spielberg syrgir mjög rithöfundinn Michael Crichton, sem samdi skáldsögurnar Jurassic Park og The Lost World sem Spielberg kvikmyndaði við frábærar undirtektir. Chricton lést á þriðjudaginn úr krabbameini 66 ára að aldri.

„Hæfileikar Michaels voru ennþá umfangsmeiri en hans eigin risaeðlur í Jurassic Park," sagði Spielberg. „Hann var bestur í því að blanda saman vísindum og stórum málefnum og í hans meðförum var það trúverðugt að risaeðlur gengu um jörðina á nýjan leik. Michael var rólynd sál sem notaði hina áberandi hlið sína í skáldsögur sínar. Það mun engum takast að fylla skarð hans."

Crichton, sem fæddist í Chicago, samdi sínar fyrstu bækur á meðan hann var í læknanámi í Harvard. Sama ár og hann útskrifaðist, 1969, kom út fyrsta metsölubók hans, The Andromeda Strain.

Sú bók var kvikmynduð rétt eins og aðrar bækur hans á borð við Congo, Rising Sun og Disclosure. Chrichton samdi einnig handritið að myndinni Twister, auk þess sem hann var höfundur læknaþáttanna ER sem njóta ennþá mikilla vinsælda. Vann hann til fjölda Emmy-verðlauna fyrir þættina.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×