Tónlist

Lögin eru háð geðsveiflum

Þormóður Dagsson, Svavar Pétur Eysteinsson, Berglind Häsler og Örn Ingi Ágústsson skipa hljómsveitina Skakkamanage sem gefur út aðra plötu sína í dag.
Þormóður Dagsson, Svavar Pétur Eysteinsson, Berglind Häsler og Örn Ingi Ágústsson skipa hljómsveitina Skakkamanage sem gefur út aðra plötu sína í dag. mynd/orri jónsson

Önnur plata hljómsveitarinnar Skakkamanage kemur út í dag. Á ýmsu gekk við upptökurnar.

Upptökur á nýjustu plötu Skakka­manage, All Over the Face, reyndu svo mjög á taugar forsprakkans Svavars Péturs Eysteinssonar að hann þurfti að leggjast inn á heilsuhæli í miðjum upptökum.

„Þetta tók svo mikið á að ég þurfti að leggjast inn til að ná mér niður og til að endurforrita mig fyrir framtíðina," segir Svavar. „Þetta er frægt heilsuhæli í útjaðri höfuðborgarsvæðisins þar sem fólk á öllum aldri getur hvílt sig og komið út sem betri manneskjur. Það er meira en að segja það að klambra saman heilli plötu í einni lotu."

Platan var tekin upp „live" á frekar skömmum tíma og var keyrslan því mikil í hljóðverinu. Svo mikil að upptökustjórinn Orri Jónsson úr Slowblow hefur tekið þá ákvörðun að hljóðrita ekki fleiri hljómsveitir í framtíðinni, hvorki meira né minna.

All Over the Face hefur að geyma ljúfsárar ballöður í bland við hávaðarokk.

„Lögin eru háð okkar geðsveiflum og fara úr miklum rólegheitum í miklar öfgar," segir Svavar, sem fyrr á árinu barðist hvað harðast fyrir húsafriðun í miðborg Reykjavíkur. Krafðist hann þess meðal annars að barinn Sirkus yrði látinn vera, en án árangurs. Hann vill þó ekki meina að textarnir á plötunni feli í sér þennan boðskap. „Ég held að það sé frekar að pirringurinn í garð Reykjavíkurborgar, skipulagsyfirvalda og útþenslu kapítalismans hafi skilað sér í lögin frekar en textana."

Hann býr nú á Seyðisfirði ásamt eiginkonu sinni, Berglindi Häsler, sem er líka í Skakkamanage. „Það hefur gengið á ýmsu í þessu bandi. Maður er búinn að stökkbreytast algjörlega, fluttur út á land og búinn að hvíla sig á Reykjavík í bili. Ég tek henni fagnandi aftur þegar ég verð búinn að sættast við hana á ný."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×