Er Gro Harlem skattsvikari? Óli Tynes skrifar 4. janúar 2008 11:36 Gro Harlem Brundtland.
Norskir fjölmiðlar velta því mjög fyrir sér hvort Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra, sé stórfelldur skattsvikari. Brundtland er nú framkvæmdastjóri Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar. En hefur fundið sér fleiri matarholur. Norska Dagbladet upplýsti í gær að hún þægi meðal annars laun frá Pepsi Cola fyrir ráðgjöf. Þau laun eru greidd í Frakklandi og talin fram þar en ekki hjá norska skattinum. Sömu sögu er að segja um greiðslur sem Brundtland fær fyrir að flytja erindi. Hún er skráð hjá fyrirtæki í Lundúnum sem heitir Celebrity Speakers. Það útvegar frægt fólk til fyrirlestrahalds um allan heim. Þar er Brundtland í félagi við fólk eins og Michael Gorbachev, Jimmy Carter og fyrsta tunglfarann, Neil Armstrong. Brundtland fær um þrjár og hálfa milljón króna fyrir hvern fyrirlestur og þær tekjur eru einnig gefnar upp í Frakklandi. Þetta segja norskir fjölmiðlar að geti verið brot á norskum lögum. Það er ekki óalgengt að forsætisráðherrar og aðrir framámenn komist fyrst í álnir þegar þeir láta af embætti. Einmitt með fyrirlestrahaldi og ráðgjöf. Þannig hafa til dæmis Bill Clinton og Tony Blair margfaldar þær tekjur sem þeir höfðu meðan þeir leiddu þjóðir sínar.
Erlent Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira