Finnar mótmæla tungumálakúgun Svía 8. janúar 2008 16:21 Finnar eru sárir út í Svía.
Ákvörðun um að opinberir starfsmenn í Síþjóð skuli tala sænsku í vinnunni hefur leitt til mótmæla í Finnlandi. Maarit Feldt-Ranta fulltrúi í Norðurlandaráði vill vita hvernig sænska ríkisstjórnin hyggst bregðast við. Ástæðan fyrir spurningu Feldt-Ranta er að félagsmálaskrifstofan í Uppsölum hefur bannað tveimur finnskumælandi starfsmönnum að tala saman á móðurmáli sínu. Sveitarfélagið Uppsalir og stéttarfélag starsfmanna sveitarfélaga í Svíþjóð SKTF hafa einnig komist að samkomulagi um að sænska skuli töluð í húsakynnum skrifstofunnar, t.d. á kaffistofu. -Ákvörðunin skerðir réttindi allra sem tilheyra minnihluta-tungumálahópi í Svíþjóð, ekki síst Finna. Ákvörðunin er einnig athyglisverð þar sem finnska er opinbert minnihlutatungumál í Svíþjóð, skrifar Feldt-Ranta. Hún ítrekar að réttindi minnihlutahópa sé mikilvægur þáttur í norræna samfélagslíkaninu. Þetta sérstaka tilfelli hefur þegar vakið óánægju meðal Finna. Dómsmálaráðherra Finnlands hefur einnig fjallað um málið. Maarit Feldt-Ranta situr á finnska þinginu og er fulltrúi í sendinefnd Finna í Norðurlandaráði. Fulltrúar í ráðinu hafa meðal annars rétt til að senda skriflegar fyrirspurnir til ríkisstjórna Norðurlanda.
Erlent Mest lesið „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Innlent Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn Innlent „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ Innlent Fleiri fréttir Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Ganga til kosninga í febrúar Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu „Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Vill losna við tálma úr vegi sínum Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Aldrei jafn margar drónaárásir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Sjá meira