Cleveland - Phoenix í beinni á miðnætti 25. janúar 2008 17:24 Amare Stoudemire hjá Phoenix fer upp í troðslu í leik gegn Cleveland í janúar í fyrra. Nordic Photos / Getty Images
Leikur Cleveland og Phoenix í NBA deildinni verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan tólf á miðnætti í nótt. Cleveland hefur unnið fimm leiki í röð og tekur í kvöld á móti einu besta liði deildarinnar. Cleveland (23 sigrar - 18 töp) byrjaði leiktíðina mjög illa en hefur heldur betur komið til baka eftir áramótin og er sem stendur á lengstu sigurgöngu sinni á tímabilinu. Liðið hefur unnið 9 af síðustu 10 leikjum sínum og rótburstaði Washington 121-85 í síðasta leik. Það var stærsti sigur Cleveland í 14 ár. Miðherjinn Zydrunas Ilgauskas afrekaði það í leiknum að hitta úr öllum 10 skotum sínum. Hann skoraði 24 stig og LeBron James var með 23 stig, 8 fráköst og 8 stoðsendingar. Cleveland varð þó fyrir áfalli í leiknum þar sem það missti byrjunarliðsmanninn Sasha Pavlovic í meiðsli og verður hann frá keppni næstu sex til átta vikurnar. Phoenix (30 sigrar - 13 töp) kemur væntanlega vel stemmt til leiks í kvöld eftir slæmt tap fyrir neðsta liði deildarinnar Minnesota í síðasta leik. Phoenix er engu að síður eina liðið í Vesturdeildinni sem er búið að vinna 30 leiki í deildarkeppninni og hætt er við því að liðið sýni mun betri leik í kvöld en gegn Minnesota. Phoenix hefur þess utan gengið mjög vel í viðureignum sínum gegn Cleveland í gegn um árin og hefur Phoenix unnið 14 af síðustu 17 leikjum liðanna. Staðan í NBA NBA bloggið á Vísi
NBA Mest lesið „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Martröð Chelsea en Brighton gæti endað í Meistaradeild Evrópu Sport Ronaldo gæti spilað með syni sínum Fótbolti Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Enski boltinn Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Fótbolti Ótrúleg endurkoma og Inter gæti náð tvennunni Fótbolti Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Körfubolti Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Enski boltinn Ísland niður um sæti en berst við tvö af þremur bestu í heimi Fótbolti Baulað á skúrk síðustu viku en Real heldur í vonina Fótbolti Fleiri fréttir „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Fyrstur til að vera kosinn varnarmaður ársins með fullu húsi Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Úlfarnir og Haukarnir með endurkomur Selfyssingar svöruðu fyrir sig Uppgjörið: Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Of mikil pása gæti verið slæm „Vildi að pabbi væri hérna“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði Sjá meira