Körfubolti

Er skrefareglan dauð í NBA?

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ball í baráttunni við Giannis Antetokounmpo í nótt.
Ball í baráttunni við Giannis Antetokounmpo í nótt. EPA

Umræða vestanhafs um fjölda skrefa sem stjörnur deildarinnar komast upp með að taka áður en þeir skora körfu hefur orðið sífellt háværari. LaMelo Ball sýndi ýkt sýnidæmi í deildinni í nótt.

Tvö skref er hámarkið sem leikmaður má taka samkvæmt reglum körfuboltans eftir að viðkomandi hættir að drippla boltanum. Regluleg dæmi koma aftur á móti upp í NBA-deildinni þar sem sú regla er trössuð svo rækilega að fjölmargir reki upp stór augu.

LeBron James hefur iðulega tekið fjögur skref þegar hann sækir að körfunni og tekur sniðskot eða treður boltanum án þess að dómarar leiks setji mikið út á það.

LaMalo Ball tók þá sex skref í nótt er hann skoraði þriggja stiga körfu fyrir Minnesota Timberwolves gegn Miami Heat. Einn dómara leiksins stóð um tvo metra frá Ball, með hann beint fyrir framan sig, en sá ekki ástæðu til að dæma körfuna ógilda.

Myndskeið af atvikinu hefur farið sem eldur um sinu á netheimum frá því í nótt og margur veltir því fyrir sér hvort skrefareglan sé hreinlega dauð í NBA-deildinni.

Ball var að spila sinn fyrsta leik fyrir Timberwolves eftir skipti frá Charlotte Hornets í sumar. Hann skoraði 21 stig í 131-106 útisigri í Flórída.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×