Kínverjar vilja í Heimskautsráðið 28. janúar 2008 15:46 Frá Norðurpólnum.
Stór lönd eins og Kína, Ítalía, Stóra-Bretland, Spánn og Frakkland vilja taka þátt í að stýra þróun á nýtingu þeirra miklu auðlinda sem finnast á Heimskautssvæðinu, og stjórna umhverfisverndarstarfi í norðri. Frá þessu var skýrt í norrænum fréttum norska ríkisútvarpsins, NRK. Löndin vilja taka þátt í alþjóðlegum samstarfshópi Heimskautsráðsins, er haft eftir Karsten Klepsvik heimskautsráðgjafa hjá norska utanríkisráðuneytinu. "Það kostar okkur mikla vinnu að hafa þessi lönd með í vinnuhópunum, en þau hafa einnig mikið til málanna að leggja, bæði hvað varðar rannsóknagetu og aðföng. Kína hefur til að mynda tilkynnt að auknu fjármagni verði varið til málaflokksins. Umræður um hvernig aðkoma landanna inn í ráðið verður, munu verða teknar upp á Solver-fundinum í vor. Auk fullrar aðildar með neitunarvaldi, væri hægt að hugsa sér nokkrar aðrar leiðir, til að mynda gætu löndin átt aðild sem ráðgjafar án atkvæðisréttar," Segir Klepsvik. Heimskautsráðið var stofnað árið 1996. Aðild eiga Utanríkisráðuneyti Norðurlandanna, Bandaríkjanna, Kanada og Rússlands og fulltrúar þeirra frumbyggja sem búa á svæðinu. Noregur fer með formennsku í ráðinu 2006-2008. Skrifstofa ráðsins er í Tromsø.
Erlent Mest lesið „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Halldór Blöndal er látinn Innlent Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Innlent Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Erlent Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn Innlent Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Innlent „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Innlent Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Fleiri fréttir Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Sjá meira