Múslimar brenna aftur danska fánann Óli Tynes skrifar 14. febrúar 2008 15:31 Dannebrog brenndur. AP/Myndasafn
Fyrstu viðbrögðin eru nú komin við þeirri ákvörðun danskra fjölmiðla að birta aftur hinar umdeildu teikningar af Múhameð spámanni. Danski fáninn var brenndur í Pakistan í dag og þingmenn í Kúveit hvetja til algers viðskiptabanns á Danmörku. Þingmaðurinn Waleed al-Tabtabai flutti þrumuræðu á þinginu í dag. Hann kallaði dönsku ríkisstjórnina hunda og krafðist þess að algert viðskiptabann verði sett á Danmörku. Dönsk stjórnvöld hafa þegar sent út aðvörun til þegna sinna að fara varlega í löndum múslima. Ríkisstjórnin bíður nú milli vonar og ótta eftir að sjá hvort ófriðarbálið verði jafn heitt og útbreitt og þegar myndirnar voru fyrst birtar á síðasta ári. Þá létust sex manns og tugir særðust í óeirðum víða í múslimalöndum. Dönsk fyrirtæki töpuðu milljörðum króna í viðskiptum. Danskir fjölmiðlar ákváðu að birta myndirnar á nýjan leik eftir að upp komst að þrír múslimar ætluðu að myrða einn teiknarann.
Erlent Mest lesið Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Innlent Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Innlent „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Innlent Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Innlent Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Innlent „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Innlent Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Innlent Fleiri fréttir Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Reyna að stöðva olíuleka eftir að skip sökk við Grænland Neyðarástand vegna skógarelda í Portúgal Margrét Þórhildur á sjúkrahúsi Átta ára tók fjölskyldubílinn, ók í Target og fékk sér frappó Tuttugu konur saka Mohamed Al Fayed um kynferðisofbeldi 20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Þrír handteknir eftir skotárás við skóla í Osló Talstöðvar springa einnig í Beirút Harris eykur forskotið á landsvísu Þverár Amasonfljóts þorna upp sem aldrei fyrr Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Meta úthýsir rússneskum ríkisfjölmiðlum Stærðarinnar sprengingar í vopnageymslu í Rússlandi Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir kafbátsslysið Microsoft segir rússneskt tröllabú á bak við falsáróður um Harris Sjá meira