Tveir sigrar á sama kvöldinu hjá Atlanta 9. mars 2008 16:37 Joe Johnson og félagar nældu í mikilvæga sigra í nótt Nordic Photos / Getty Images
Lið Atlanta Hawks náði þeim sjaldgæfa áfanga í NBA deildinni í nótt að næla sér í tvo sigra á einu og sama kvöldinu. Liðið lagði Miami Heat tvívegis í gær þar sem liðin endurtóku síðustu 50 sekúndurnar úr framlengdri viðureign sinni í haust. Þá kom upp sú staða að Shaquille O´Neal var fyrir mistök vísað af velli í framlengingunni þegar ritarar töldu hann hafa fengið sína sjöttu villu þegar hann var í raun aðeins að fá sína fimmtu villu. Því var ákveðið að síðustu rúmar 50 sekúndur leiksins yrðu spilaðar aftur, en svo fór að lokum að hvorugu liðinu tókst að skora. Lið Miami mætti mikið breytt til leiksins í nótt og var auðvitað án Shaquille O´Neal sem er farinn til Phoenix síðan. Lokastaðan í frestaða leiknum stóð því óbreytt og Atlanta vann leikinn 114-111. Liðin spiluðu síðan hefðbundinn leik sinn strax á eftir og þar vann Atlanta aftur 97-94 og nældi sér fyrir vikið í tvo gríðarlega dýrmæta sigra í baráttunni um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina í Austurdeildinni. "Þessar 50 sekúndur voru rosalega furðulegar - en það var gaman að vera partur af þessu," sagði Dwyane Wade hjá Miami eftir leikinn. Þetta var í fyrsta skipti síðan árið 1982 sem leikur er endurtekinn að hluta eða að fullu undir svipuðum kringumstæðum, en þegar það gerðist síðast var það lið Los Angeles Lakers sem þurftir að sætta sig við að tapa fyrir San Antonio í endurteknum leik. Þá var Pat Riley þjálfari Miami einmitt þjálfari Lakers-liðsins.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira