Fjórir látnir eftir að krani féll á hús í New York Óli Tynes skrifar 16. mars 2008 12:08
Miðað við tjónið sem kraninn olli er eiginlega furðulegt að ekki skyldu fleiri en fjórir láta lífið. Björgunarsveitir sem unnu á staðnum í alla nótt hafa enda ekki útilokað að fleiri finnist látnir. Þegar kraninn hrundi brotnaði hann í marga hluta. Hann flatti meðal annars út fjögurra hæða íbúðarhús og braut niður hluta af fimm öðrum byggingum. Bílar voru einnig flattir út og risastór rykský lagðíst yfir austurhluta Manhattan. Kraninn stóð við fimmtugasta og fyrsta stræti stræti skammt frá gatnamótum annarrar Breiðgötu. Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York sagði að þetta væri versta byggingaslys í sögu borgarinnar. Fólk sem bjó í grendinni varð skelfingu lostið við lætin. Hús þess nötruðu og þegar það leit út um glugga sá það ekkert fyrir rykskýinu sem lá þarna yfir. Margir töldu víst að framið hefði verið eitthvað skelfilegt hryðjuverk. Þeir gátu hinsvegar ekkert flúið þar sem þeir sáu ekki handa sinna skil fyrir ryki, og þorðu ekki að fara út. Það er hinsvegar talið alveg ljóst að kraninn hafi hrunið fyrir slysni.
Erlent Mest lesið Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Innlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Innlent „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Innlent „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Innlent Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Innlent Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Innlent Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Innlent Búið að taka sýni úr ungu birnunni Innlent Fleiri fréttir Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Reyna að stöðva olíuleka eftir að skip sökk við Grænland Neyðarástand vegna skógarelda í Portúgal Margrét Þórhildur á sjúkrahúsi Átta ára tók fjölskyldubílinn, ók í Target og fékk sér frappó Tuttugu konur saka Mohamed Al Fayed um kynferðisofbeldi 20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Þrír handteknir eftir skotárás við skóla í Osló Talstöðvar springa einnig í Beirút Harris eykur forskotið á landsvísu Þverár Amasonfljóts þorna upp sem aldrei fyrr Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Meta úthýsir rússneskum ríkisfjölmiðlum Stærðarinnar sprengingar í vopnageymslu í Rússlandi Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir kafbátsslysið Microsoft segir rússneskt tröllabú á bak við falsáróður um Harris Sjá meira