16 mánaða fangelsisdómur Malakauskas staðfestur 18. mars 2008 14:49 Tomas Arlauskas (Malakauskas) hylur andlit sitt.
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms yfir Litháanum Tomasi Malakauskas. Hann var dæmdur í 16 mánaða fangelsi fyrir að rjúfa endurkomubann með því að koma hingað til lands. Hann átti 419 daga eftir af fyrri dómi og var tveimur mánuðum bætt við þann dóm. Fyrri dómur Tomsar er síðan 2004 en þá var hann dæmdur í fangelsi fyrir aðild sína í hinu svokallaða líkfundarmáli. Þá faldi hann ásamt tveimur öðrum líkið af Vaidas Jucevicius í höfninni í Neskaupstað með 400 grömm af amfetamíni innvortis. Í kjölfarið á þeim dómi var hann dæmdur í 10 ára endurkomubann hingað til lands. Tomas fékk reynslulausn þegar hann átti 14 mánuði eftir af fangelsisdómnum í líkfundarmálinu. Hann hins vegar rauf þessa reynslulausn með því að koma hingað til lands og verður því að afplána þá 14 mánuði sem hann átti eftir af fyrri dómi. Þegar tekið var mið af sakaferli taldi héraðsdómur rétt að dæma Tomas í 16 mánaða fangelsi. Tomas kom hingað til lands í byrjun september á síðasta ári. Yfirvöld voru hins vegar lengi að átta sig á veru hans hér á landi þar sem hann hefur tekið upp annað eftirnafn og heitir nú Tomas Arlauskas. Hann á barn með íslenskri unnustu sinni. Tomas rauf ekki bara endurkomubann þegar hann kom hingað til lands heldur var hann einnig gripinn með 26 grömm af amfetamíni.
Líkfundarmálið Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Fleiri fréttir Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Sjá meira