Teldu rétt, strákur Óli Tynes skrifar 6. apríl 2008 12:22
Kosningatölur hafa enn ekki verið birtar í Zimbabwe, þrátt fyrir háværar kröfur stjórnarandstöðunnar þar um. Það hefur þó verið viðurkennt að Morgan Tsvangirai hafi fengið fleiri atkvæði en Róbert Múgabe. Stjórnarandstaðan óttast mjög að Múgabe muni reyna að halda völdum með góðu eða illu. Skýrt hefur verið frá því að lögreglan hafi ráðist inn á skrifstofur andstöðunnar og hrellt hana á ýmsan annan hátt. Múgabe hélt því í fyrstu fram að Tsvangirai hefði ekki fengið tilskilinn meirihluta og því þyrfti að kjósa aftur. Samkvæmt stjórnarskránni yrði önnur umferð kosninga að vera í síðasta lagi þrem vikum eftir þá fyrri. Múgabe sagði hinsvegar að það yrði ekkert endilega gert. Og nú hefur forsetinn breytt um stefnu og segir að það þurfti að telja atkvæðin á nýjan leik. Einhverntíma var sagt; vigtaðu rétt strákur.
Erlent Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira