Flott afmæli í Swazilandi Óli Tynes skrifar 8. september 2008 11:56 Mswati mætti í splunkunýjum BMW í afmæli sitt.
Það var ekkert til sparað þegar Mswati konungur Swazilands varð fertugur á laugardaginn. Ríki hans fagnaði fertugsafmæli þennan sama dag. Ekki var að sjá að það varpaði skugga á hátíðahöldin í þessu bláfátæka ríki að fæstir þegnar þess ná að verða fertugir. Meðalævi í Swazilandi er 33,2 ár. Mswati kóngur er einvaldur í landinu, þar eru ekki leyfðir neinir stjórnmálaflokkar. Þó hefur borið á gagnrýnisröddum vegna þessara hátíðahalda sem opinberlega eru sögð hafa kostað um 200 milljónir króna. Líklegri tala er sögð vera um milljarður króna. Þá er væntanlega talinn með innkaupatúrinn sem kóngur fór í til Dubai ásamt átta af tólf eiginkonum sínum. Þar keyptu þau bíla og fín föt fyrir afmælið og Mswati mætti í opnum BMW í afmæli sitt. Eyðnismitaður almúginn klappaði kóngi sínum lof í lófa, en eyðni er útbreiddari í Swazilandi en nokkursstaðar annarsstaðar í heiminum. Mörgum afrískum þjóðhöfðingjum var boðið í afmælið og þeir mættu vel. Meðal þeirra var Róbert Mugabe forseti Zimbabwe sem var sérstaklega hylltur. Mugabe nýtur vinsælda víða í Afríku þar sem hann er talinn standa uppi í hárinu á Vesturlöndum.
Erlent Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Erlent Fleiri fréttir Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Sjá meira