Tónlist

Undirbúa nýja plötu

Bandarísku rokkararnir eru strax farnir að undirbúa nýja plötu.
Bandarísku rokkararnir eru strax farnir að undirbúa nýja plötu.

Rokkararnir í Kings of Leon eru þegar búnir að semja fjögur til fimm lög fyrir næstu plötu sína þrátt fyrir að aðeins nokkrir mánuðir séu liðnir síðan sú síðasta, Only By the Night, kom út.

Að sögn trommarans Nathans Followill er léttara yfir þessum nýju lögum heldur en þeim sem hljóma á síðustu plötu.

„Þau hljóma meira eins og við séum í miklu stuði, bara að spila og skemmta okkur," sagði hann.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×