Bíó og sjónvarp

Á tveimur hátíðum

Einar Þór Gunnlaugsson. Kvikmyndin Heiðin verður sýnd á tveimur kvikmyndahátíðum á næstunni.
Einar Þór Gunnlaugsson. Kvikmyndin Heiðin verður sýnd á tveimur kvikmyndahátíðum á næstunni.

Kvikmyndin Heiðin verður sýnd í flokknum Alþjóðlegar uppgötvanir á kvikmyndahátíð í Mannheim-Heidelberg í byrjun nóvember. Heiðin er í hópi 32 nýrra mynda sem voru valdar sérstaklega úr um 2.500 myndum sem valnefnd hátíðarinnar barst og er því um mikinn heiður að ræða fyrir leikstjórann Einar Þór Gunnlaugsson og aðra sem stóðu að myndinni.

Heiðin verður á hátíðinni sýnd í fyrsta sinn almennum áhorfendum utan Íslands. Leikstjórinn ásamt leikurum muna sækja hátíðina heim og ræða við gesti í lok nokkurra sýninga. Í lok nóvember verður Heiðin síðan sýnd á kvikmyndahátíð í Tallinn í Eistlandi þar sem hún verður á aðaldagskránni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×