MH tók fyrsta MH-Kvennó daginn Skólalíf skrifar 9. október 2009 21:58 Menntaskólinn við Hamrahlíð.
Menntaskólinn við Hamrahlíð bar sigurorð af Kvennaskólanum á fyrsta MH-Kvennó deginum í gærkvöldi. Keppnin hófst á Miklatúni um miðjan dag í gær og lauk með ræðukeppni í hátíðarsal MH. Þar tókust ræðulið skólanna á um umræðuefnið Almúginn er leiksoppur, og mæltu Kvenskælingar með, en MH-ingar á móti. Mæting á keppnina var með besta móti, hátíðarsalurinn var troðfullur og stemning meðal áhorfenda mikil. Keppnin var að sögn æsispennandi og skylmdust liðin á báða bóga um efnið. Mistök tímavarðar munu þó hafa sett strik í reikninginn, því þrjátíu sekúndna viðvörunarspjaldið sem ræðumönnum er rétt til að koma í veg fyrir að þeir tali fram yfir tímamörk skilaði sér aldrei til frummælanda Kvennaskólans, og því talaði hann um hálfri mínútu of lengi. Dómarar tóku þó þá ákvörðun að láta mistökin ekki hafa áhrif á stigagjöfina, þar eð þeir voru ekki bundnir af reglum MORFÍS, enda um vináttukeppni milli skólanna að ræða. Úr varð að Menntaskólinn við Hamrahlíð sigraði með átta stigum, en Baldur Eiríksson, stuðningsmaður Kvennaskólans, var valinn ræðumaður kvöldsins.
Menntaskólar Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sahara Ray látin Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira