Viðskipti erlent

Bouton kveður risabankann

Fyrrverandi forstjóri franska bankans Societe Generale segist hafa sætt vægðarlausri gagnrýni vegna hrakfara bankans síðasta árið. Fréttablaðið/AP
Fyrrverandi forstjóri franska bankans Societe Generale segist hafa sætt vægðarlausri gagnrýni vegna hrakfara bankans síðasta árið. Fréttablaðið/AP

Daniel Bouton, fyrrverandi forstjóri og núverandi stjórnarformaður franska risabankans Societe Generale, hefur sagt starfi sínu lausu frá og með næsta mánuði. Ástæðurnar segir hann vægðarlausa gagnrýni á störf sín.

Bouton sat í bankastjórastólnum þegar mál verðbréfamiðlarans Jerome Kerviels komst upp en það er það bíræfnasta í sögu verðbréfabrota innan bankageirans ef frá er talin svikamylla Bernie Madoffs. Verðbréfaviðskipti Kerviels voru langt út yfir heimildir. Grunur hefur leikið á að stjórn bankans hafi verið kunnugt um brotin en lokað augunum fyrir þeim þegar bankinn hagnaðist á þeim. Á endanum tapaði bankinn 4,9 milljörðum evra vegna þessa, tæpum 500 milljörðum íslenskra króna á þeim tíma þegar málið komst upp í janúar í fyrra.

Bankinn hefur síðan þá glímt við verulega fjárhagserfiðleika og varð að leita til franskra stjórnvalda eftir 1,7 milljarða evra láni.

Bouton stóð upp úr forstjórastólnum vegna málsins fyrir ári og tók við stjórnarformennsku. Hann fær engar starfslokagreiðslur, að sögn breska ríkisútvarpsins.

Kerviel sat í fangelsi í tæpa tvo mánuði í fyrravor. Hann gengur nú laus því enn er verið að rannsaka mál hans. - jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×