Rússneska flugfélagið Aeroflot ætlar sér að bjóða í tékkneska ríkisflugfélagið Czech Airlines (CSA) og mun þar keppa meðal annars við Travel Service sem er dótturfélag Icelandair í Tékklandi.
Samkvæmt frétt um málið á Reuters segir að auk Areoflot og Travel Service hafi Air France einnig áhuga á að skoða kaup á CSA.
Fjármálaráðuneyti Tékklands lokaði fyrir fyrstu umferð í söluferlinu á CSA gær en ætlunin er að selja 91,5% hlut ríkisins í félaginu. Talið er að verðmæti þessara hlutar sé um fimm milljarðar tékkneskra króna eða um 30 milljarðar kr.
Talsmaður ráðuneytisins segir í samtali við Reuters að þar á bæ voni menn að sölunni ljúki í september á þessu ári. Á næstunni verði ákveðið hverjir fái að gera bindandi tilboð í CSA.
Þeir sem fá að bjóða í CSA verða að uppfylla nokkur skilyrði. Þeirra á meðal eru að CSA haldi stöðu sinni sem tékkneskt eða evrópskt flugfélag til að koma í veg fyrir að félagið glati flugleiðum sínum utan Evrópu.
Rekstur CSA hefur verið erfiður undanfarið ár svipað og hjá flestum öðrum flugfélögunum í heiminum.