Viðskipti erlent

Dóttir mafíuforingja úrskurðuð gjaldþrota

Fjármálakreppan hefur nú læst klónum í eina umtöluðustu raunveruleikaþáttastjörnu Bandaríkjanna Victoriu Gotti, dóttur hins alræmda mafíuforingja John Gotti. Victoria hefur sumsé verið úrskurðuð persónulega gjaldþrota.

Samkvæmt frétt um málið á börsen.dk hefur Victoria glímt við fjárhagserfiðleika undanfarin ár og átti í vandræðum með að greiða reikninga sína. Hún hefur um nokkurt skeið reynt að selja hús sitt í New York en án árangurs.

JPMorgan bankinn hefur fengið nóg af Victoriu, fór fram á gjaldþrot og setti húsið á nauðungaruppboð.

Sjálf kennir Victoria fyrrum eiginmanni sínum um erfiðleikana. Sá heitir Carmine Agnello og fetaði í fótspor tengdaföðurs síns sem mafíuforingi. Victoria hefur sakað hann um að hafa stolið peningum sínum. Agnello afplánar í augnabilinu fangelsisdóm fyrir m.a. fjárkúgun og íkveikjur.

Victoria var um tíma stjarnan í raunveruleikaþáttum eigið líf en hefur einnig reynt fyrir sér sem rithöfundur og dálkahöfundur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×